Á morgun er komið að því, úrslitaleikur Meistaradeildarinnar fer fram í Búdapest.
Englandsmeistarar Arsenal mæta þá ríkjandi Evrópumeisturum Paris Saint-Germain en flautað verður til leiks klukkan 16:00 sem er nýr leiktími fyrir þennan leik sem öll álfan mun fylgjast með.
Meistaraspáin er skemmtileg keppni sem er spiluð með fram útsláttarkeppninni. Sérfræðingar í ár eru Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar í Bestu deild kvenna, og Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavík/Njarðvíkur í sömu deild. Aðili frá Fótbolta.net spáir einnig í leikina. Spáð er um úrslit allra leikja í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. Fyrir hárréttar lokatölur fást þrjú stig en eitt stig ef rétt tákn er á leiknum.

Gylfi Tryggvason
Arsenal 1 - 0 PSG
Óskar Smári tveimur stigum á eftir mér í þessari mögnuðu keppni. Maður er nýbúinn að fá á sig jöfnunarmark í uppbótartíma gegn honum og hef ég ekki snefil af áhuga á að upplifa það aftur nokkurn tímann í bráð.
Hann verður að hitta á rétt úrslit og spáir PSG væntanlega sigri.
Ég verð þó að fylgja eigin sannfæringu og maður getur ekki annað en samglaðst Arsenal sem hefur verið besta lið Evrópu síðan í ágúst. Kláruðu deildina verðskuldað, komnir með hugarfar sigurvegarans. En þeir kláruðu deildina á 1-0 stressandi sigri gegn Burnley og þaðan beint í sófann þar sem þeir tryggðu sér þetta. Þeir mættu aldrei með titilinn á vellinum fyrir framan þá og kepptu um hann. Þess utan hafa þeir aldrei unnið eyrun stóru.
PSG eru með Kvaratskhelia, hugarfar sigurvegarans og reynsluna í þokkabót.
Besta sóknin gegn bestu vörninni. Sókn vinnur leiki en vörn vinnur titla. Arsenal vann EPL á vörninni og þeir munu vinna CL á vörninni einnig. Þeir eru hreinlega bestir.
Saka horn. Gabriel mark. Eitt núll. Titill á loft.
Eftir 22 ár þyrnum stráð er kominn logi á fallbyssunnar þráð. BOOM!
(Já GB, þú mátt nota þessa línu þegar þeir lyfta titlinum).
Óskar Smári Haraldsson
Arsenal 0 - 4 PSG
Ætla byrja á því að nota tækifærið og óska öllum Arsenal mönnum til lukku með Englandsmeistaratitillinn. Sérstakar óskir til Frissa í sundlauginni, king Gubbi Gubb, Sveinn Sverris sjúkraþjálfari, El, GB, Sveinbjörn Óli, Elías Ingi Árnason, Johann Daði Gíslason og síðast en alls ekki síst Reynir Már Sveinsson, betur þekktur sem Rainir.
Adam verður þó ekki lengi í paradís. Þynnka er alveg óbærilegt fyrirbæri sem mun læðast aftan að Arsenal mönnum í þessum leik. Allir hér að ofantöldu þekkja þynnku sem fyrirbæri. Arsenal mun ekki eiga breik. Luis Enrique tekur Arteta í létta bóndabeygju þegar kemur að uppsetningu á úrslitaleik og PSG mun vinna þennan leik mjög sannfærandi. Dembele verður maður leiksins, hann setur fyrstu tvö mörkin. Doue setur eitt snemma í seinni, áður en Vitinha, sem fyrir mér er einn besti miðjumaður heims, mun setja síðasta naglann í kistuna.
Fótbolti.net - Mate Dalmay
Arsenal 1 - 3 PSG
Þrátt fyrir hræðslu marga verður þetta fjörugur og skemmtilegur leikur. Arsenal kemst 1-0 yfir en PSG vinna 1-3. Ef hann er heill þá ætla ég að spá því að Goncalo Ramos, Portúgalinn knái, komi inn á og skori tvö mörk.
Staðan í heildarkeppninni:
Gylfi Tryggva - 30
Óskar Smári - 28
Fótbolti.net - 22