Það bendir flest til þess að brasilíski miðjumaðurinn Ederson verði fyrsti leikmaðurinn sem Manchester United kaupir í sumar.
Talið er að félögin séu að nálgast samkomulag um kaupverð upp á 35 milljónir punda auk þriggja milljóna í árangurstengdum greiðslum fyrir þennan 26 ára gamla leikmann.
Talið er að félögin séu að nálgast samkomulag um kaupverð upp á 35 milljónir punda auk þriggja milljóna í árangurstengdum greiðslum fyrir þennan 26 ára gamla leikmann.
Atletico Madrid hafði einnig verið orðað við Ederson en spænska félagið virðist hafa beint sjónum sínum annað og hyggst frekar sækja Joao Gomes frá Wolves. Ederson hefur leikið á Ítalíu síðustu fjögur og hálft ár, fyrst með Salernitana og síðan með Atalanta þar sem hann hefur verið einn af lykilmönnum liðsins undanfarin tímabil.
Minnir á Bruno Guimaraes
En hvað er United að fá í þessum leikmanni? Tim Vickery, sérfræðingur breska ríkisútvarpsins um fótboltann í Suður-Ameríku segir Man Utd vera að fá leikmann sem svipi til Bruno Guimaraes, miðjumanns Newcastle.
Hann getur brotið upp leik andstæðinganna, en hefur jafnframt mikið fram að færa með boltann og er öflugur í að keyra upp völlinn. „Ég er góður með boltann í fótunum og ég er sterkur bæði varnar- og sóknarlega. Mér finnst það auðvelt að finna svæði," sagði Ederson sjálfur um sinn leikstíl.
Það gæti reynst mikilvægt fyrir United sem stendur frammi fyrir breytingum á miðjunni. Casemiro er á förum og Manuel Ugarte gæti einnig yfirgefið félagið.
Ederson fer ekki á HM með Brasilíu en stærsta tækifærið á ferli hans gæti verið handan við hornið.

