Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   fös 29. maí 2026 13:43
Elvar Geir Magnússon
Rosalega glaður og stoltur eftir að hafa fengið SMS frá Arnari
Eimskip
Stefán Ingi Sigurðarson
Stefán Ingi Sigurðarson
Mynd: KSÍ
Stefán Ingi Sigurðarson, sóknarmaður Go Ahead Eagles í Hollandi, er meðal nýliða í íslenska landsliðshópnum sem mætir Japan í vináttulandsleik á sunnudag.

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari sagði þegar hópurinn var kynntur að eftir góða þróun á ferli Stefáns væri næsta skref að hann fengi að prófa sig í landsliðsumhverfi.

Stefán ræddi við miðla KSÍ og var spurður út í tilfinninguna þegar hann fékk kallið.


Lestu um leikinn: Japan 0 -  0 Ísland

„Mér leið gríðarlega vel, rosalega glaður og stoltur af því að fá kallið í þetta verkefni. Arnar sendi á mig SMS hvort ég væri laus í spjall og þá fannst manni líklegt að maður væri að fara með. Við áttum svo gott samtal og gaman að geta rætt við hann í raun í fyrsta skipti," segir Stefán. Hann segir æfingar hafa gengið vel.

„Það var smá stress að vera í A-landsliðinu í fyrsta sinn en það er gaman að geta verið með góðum leikmönnum og geta reynt að sýna sig. Þetta er aðeins öðruvísi hópur því þetta er utan glugga en þetta er gott tækifæri fyrir mig að kynnast reynslumiklum leikmönnum."

Japan - Ísland hefst 10:25 að íslenskum tíma á sunnudaginn en japanska liðið er að búa sig undir HM.

„Það má búast við erfiðum leik gegn mjög góðu liði. Við þurfum að vera rosa þéttir og sterkir sem lið. Það er gaman að spila á móti svona sterkum þjóðum," segir Stefán.



Hópurinn gegn Japan
Markverðir
Hákon Rafn Valdimarsson - Brentford F.C. - 21 leikur
Ögmundur Kristinsson - Valur - 19 leikir
Adam Ingi Benediktsson - AB

Útileikmenn
Alfons Sampsted - Go Ahead Eagles - 23 leikir
Dagur Dan Þórhallsson - CF Montreal - 8 leikir
Hjörtur Hermannsson - Volos F.C. - 30 leikir, 1 mark
Daníel Leó Grétarsson - Sonderjyske Fodbold - 29 leikir
Hörður Björgvin Magnússon - Levadiakos - 52 leikir, 2 mörk
Logi Tómasson - Samsunspor - 14 leikir, 1 mark
Valgeir Lunddal Friðriksson - Fortuna Düsseldorf - 16 leikir
Willum Þór Willumsson - NEC Nijmegen - 18 leikir
Andri Fannar Baldursson - Kasimpasa S.K. - 12 leikir
Stefán Teitur Þórðarson - Hannover 96 - 36 leikir, 1 mark
Gísli Gottskálk Þórðarson - Lech Poznan - 2 leikir
Aron Einar Gunnarsson - Al-Gharafa - 108 leikir, 5 mörk
Mikael Egill Ellertsson - Genoa CFC - 29 leikir, 2 mörk
Kristian Nökkvi Hlynsson - FC Twente - 11 leikir, 2 mörk
Brynjólfur Andersen Willumsson - FC Groningen - 9 leikir, 1 mark
Ísak Snær Þorvaldsson - Lyngby - 6 leikir, 1 mark
Stefán Ingi Sigurðarson - Go Ahead Eagles
Benoný Breki Andrésson - Stockport County F.C.
Slapp
banner
banner