Þróttur sótti mikilvægan 1-0 sigur á Hlíðarenda þegar liðið lagði Val að velli í sjöundu umferð Bestu deildarinnar. Sigurinn var sérstaklega sætur þar sem Þróttur lék manni færri í rúman hálftíma eftir að Alexia Marin Czerwien fékk að líta sitt annað gula spjald.
Unnur Dóra Bergsdóttir, sem skoraði eina mark leiksins, var ánægð með hvernig liðinu tókst að klára verkefnið.
„Bara léttir, þetta voru langar hvað hálftími eða 25 mínútur en það er bara seiglan sem kom þessu heim.“
Lestu um leikinn: Valur 0 - 1 Þróttur R.
Alexia fékk seinna gula spjaldið sitt fyrir að sparka boltanum í burtu eftir að hafa brotið af sér. Unnur staðfesti að slíkt færi ekki fram hjá sektarsjóði liðsins.
„Jú jú það er það sko. Við alveg sjáum til þess, Rósey hún hendir einhverju góðu á hana.“
Aðspurð hvort Rósey væri sektarstjóri liðsins í sumar svaraði hún brosandi:
„Já hún er sektarstjórinn!“
Þrátt fyrir að hafa þurft að verjast lengi undir lokin var stemningin í liðinu góð og Unnur Dóra hafði orð á samheldninni innan hópsins.
„Það er bara alltaf ógeðslega gaman að spila með þessu liði. Við erum með marga leiðtoga og náum vel saman og bara alltaf gaman.“
Sigurmarkið kom eftir gott samspil Unnar Dóru og Bjargar, sem var að spila sinn fyrsta byrjunarliðsleik á tímabilinu eftir meiðsli. Unnur Dóra var ánægð með að fá hana aftur inn í liðið.
„Það er geggjað. Það er náttúrulega geggjað að fá hraðann inn sem okkur hefur kannski vantað á köntunum. Við Sigga erum kannski þær hröðustu en það er bara geggjað að fá hana inn og komin í gang.“
„Maður vill alltaf vera komin með fleiri stig en svona er bara fótboltinn en við þurfum bara að halda áfram að byggja ofan á það sem við erum að gera.“
Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan og markið má sjá hér að neðan.






















