Fyrrverandi enski landsliðsmaðurinn Raheem Sterling var handtekinn í gær grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna eftir að hafa klesst Lamborghini-bifreið sinni.
Enska götublaðið The Sun segir frá þessu í kvöld.
Enska götublaðið The Sun segir frá þessu í kvöld.
Lögreglan stöðvaði hinn 31 árs gamla Sterling á M3-hraðbrautinni í Hampshire klukkan 9 í gærmorgun.
Sterling, sem leikur nú með hollenska liðinu Feyenoord, var sleppt gegn tryggingu á meðan rannsókn málsins stendur yfir. Heimildarmenn Sun segja að Sterling eigi í erfiðleikum í einkalífinu þessa dagana.
Sterling er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna, hættulegan akstur, vörslu fíkniefna og að hafa neitað lögreglunni um sýni úr sér. Á vef Sun talað um fíkniefni í C-flokki sem inniheldur meðal annars róandi lyf á borð við Valium og hláturgas. Ekki kemur nánar fram hvernig lyf fundust á Sterling.
Sterling var aðeins 15 ára þegar Liverpool keypti hann úr akademíu QPR árið 2010. Hann varð fljótt vinsæll meðal stuðningsmanna á Anfield, en samningsdeila leiddi til þess að hann færði sig til Manchester City árið 2015. Hjá City naut hann mikillar velgengni og vann fjóra Englandsmeistaratitla, fimm deildabikara og einn FA-bikar.
Síður gekk honum hjá Chelsea og Arsenal áður en hann gekk til liðs við hollenska félagið Feyenoord í febrúar síðastliðnum.



