Þórir Jóhann Helgason, leikmaður Lecce, er sagður á leið til Venezia á Ítalíu.
Samningur Þóris við Lecce rennur út í lok júní og ítalski miðillin Trivenetogoal fullyrðir að hann hafi náð samkomulagi við Feneyjarfélagið.
Í umfjöllun miðilsins segir að Venezia eigi þó eftir að ákveða hvort Þórir verði í leikmannahópi liðsins eða lánaður annað.

Þórir kom við sögu í átta leikjum hjá Lecce á tímabilinu en liðið endaði í 17. sæti deildarinnar.
Venezia tryggði sér aftur upp í Serie A á nýloknu tímabili en liðið endaði í fyrsta sæti í Serie B.
Þórir Jóhann gæti spilað áfram í Serie A á næsta ári en hann er orðaður við Venezia á frjálsri sölu. Samningurinn Lecce rennur út í júní https://t.co/0MZV4wdhzU
— Björn Már Ólafsson (@bjornmaro) May 29, 2026