Láki: Hefðum alveg getað eyðilagt partýið

Láki, þjálfari Þórs

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Láki, þjálfari Þórs

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Hrikaleg vonbrigði, hrikalega svekktur. Við vorum undir í fyrri hálfleik þar sem Skaginn voru betri og áttu skilið að vera 1-0 yfir en svo byrjuðum við seinni hálfleikinn hrikalega sterkt og fáum svo bara mark í andlitið og mér fannst það svolítið klára leikinn." voru fyrstu viðbrögð Þorláks Árnasonar þjálfara Þór
„Það voru fínir kaflar í seinni hálfleik, héldum boltanum vel en bara ekki nógu mikil ógn fram á við. Við skoruðum mark í stöðunni 2-0 sem dómarinn dæmir af þannig þá fannst manni þessi dagur bara einhverneigin eins og þetta zoomeraði þetta upp, það kemur ungur maður inná og tekur fyrirliðabandið og er búin að skora á síðustu sekúndunni. Jafnleikur sem endaði 4-0,svolítið fáránlegt."
„Uppleggið var náttúrulega að skora, þeir voru búnir að vera fá á sig mikið af mörkum í síðustu leikjum og við töldum að það væri ákveðnir veikleikar hjá þeim en mér fannst Skaginn betri í fyrri hálfleik og við vorum bara hræddir með boltann en svo gjörbreyttist það í seinni hálfleik og við fórum að halda vel í boltann og skapa okkur mjög góður stöður á vellinum en það vantaði herslumuninn."
Það var mikil stemming á Akranesi í dag enda stór helgi þar framundan og var Þorlákur Árnason spurður hvort þetta væri erfiður tímapunktur að mæta liði ÍA.
„Nei það held ég ekki sko, það skiptir engu máli og við hefðum alveg geta eyðilaggt partýið líka en eins og ég segi sanngjarn sigur Skagamanna en hrikalega ósáttur við að við höfum ekki haft meira stollt til þess að hafa þetta ekki svona stóran sigur."






