Brynjar og Olgeir tímabundið í teymi Stjörnunnar eftir uppsögn Hrannars

Rúnar Páll, fyrrum þjálfari Stjörnunnar, og Olgeir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Brynjar Kristmundsson.

Hrannar Bogi Jónsson sagði í gær upp störfum sem aðstoðarþjálfari Stjörnunnar.
Jökull Elísabetarson var rekinn sem þjálfari Stjörnunnar í síðasta mánuði en Hrannar var ráðinn aðstoðarþjálfari liðsins fyrir þetta tímabil.

TENGT EFNI
Hrannar Bogi hættur hjá Stjörnunni (Staðfest)
Jón Þór Hauksson, nýráðinn þjálfari Stjörnunnar, segir í samtali við Val Pál Eiríksson á Vísi málið hafa borið hratt að en Stjarnan hyggst leysa stöðu Hrannars með mönnum innan félagsins.
„Við þökkum Hrannari kærlega fyrir góð störf en við leysum þetta bara innanhúss. Brynjar Kristmundsson og Olgeir Sigurgeirsson stíga inn í teymið tímabundið,“ sagði Jón Þór í samtali við Vísi.
Brynjar og Olgeir eru báðir þjálfarar hjá KFG og hafa jafnframt komið að þjálfun yngri flokka Stjörnunnar.
Olgeir stýrir 3. flokki félagsins og vakti mikla athygli fyrr á árinu fyrir áhugavert upplegg í 7-1 tapi gegn Fjölni, þar sem flest mörk Fjölnis voru skoruð í autt mark Stjörnunnar.
Stjarnan mætir FH í Bestu deildinni næstkomandi föstudag. Þann 9. júlí fær Stjarnan Víking Götu í heimsókn í forkeppni Sambandsdeildarinnar.

Heimild: Vísir

Brynjar Kristmundsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð