Rúnar Páll: Þurfum bara að mæta kokhraustir í þetta og ekki missa trú á eigin getu

Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari Fylkis

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari Fylkis

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Fylkir tóku á móti toppliði Víkinga á Wurth vellinum í kvöld þegar síðustu leikir 13.umferðar Bestu deildarinnar kláruðust.
Fylkismenn áttu í hættu á að lenda í fallsæti með tapi og óhagstæðum úrslitum annarstaðar í kvöld sem svo raungerðist.
„Vonbrigði. Mér fannst við ekki þurfa að tapa þessum leik 3-1. Þetta var frekar að spilast þannig að við vorum að fara jafna þennan leik heldur en að þeir setji þriðja markið þannig það voru mikil vonbrigði að tapa þessum leik." Sagði Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari Fylkismanna eftir leikinn í kvöld.
„Við vorum helvíti öflugir hérna síðustu 20 mínútur, hálftíman af þessum leik og herjuðum vel á Víkingana og fengum fín færi og dauðafæri en svona er þetta, þetta eru vonbrigði og aðal vonbrigðin eru að fá þessi mörk á sig sem mér fannst vera ekki nógu góður varnarleikur hjá okkur. Við erum búnir að fara í gegnum þetta og við erum vel mannaðir inni í teig og annað slíkt en samt hleypum við mönnum í skot sem má bara ekki gerast og við erum búnir að fá á okkur alltof mikið af svoleiðis mörkum, því miður."
Fylkismenn sitja í fallsæti eftir þessa umferð og bíður þeirra verðugt verkefni í næstu umferðum en Breiðablik og Valur eru næstu mótherjar.
„Við þurfum að spila við þessi lið eins og önnur. Við þurfum bara að mæta kokhraustir í þetta og ekki missa trú á eigin getu. Verðum að æfa vel og njóta þess að fara og mæta þessum liðum og spila góðan fótbolta."
Nánar er rætt við Rúnar Pál Sigmundsson í spilaranum hér fyrir ofan.







