Brynjar Björn: Nokkuð sáttur
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Brynjar Björn Gunnarsson þjálfari HK fékk Stjörnuna í heimsókn í Kórinn í kvöld er liðin gerðu 1-1 jafntefli.
HK hefur verið á mikilli siglingu upp á síðkastið og hefur gengi liðsins komið mörgum á óvart.
„Sæmilega sáttur við stigið en mér fannst við geta unnið leikinn síðustu 20 mínúturnar þar sem mér fannst við vera líklegri."
„Stjarnan er sterkt lið og við verðum að virða stigið og megum ekki fara framúr okkur og vera of svekktir með þetta."
HK fer til Eyja í næstu umferð og tekur þar þátt í Þjóðhátíðarleik 3. ágúst og vonast til að halda áfram að safna stigum gegn botnliði ÍBV.
HK er nú í áttunda sæti deildarinnar með 18 stig og er þá tveim stigum frá falli en þó fjórum stigum frá evrópusæti.