West Ham hefur staðfest félagaskipti franska markvarðarins Alphonse Areola til félagsins, á láni frá franska stórliðinu Paris Saint-Germain.
Areola er 28 ára gamall markvörður sem þótti standa sig vel hjá Fulham í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Tímabilið áður var hann á láni hjá Real Madrid, sem varamarkvörður.
Areola mun veita hinum 36 ára gamla Lukasz Fabianski samkeppni um sæti í byrjunarliðinu. West Ham mun leika í Evrópudeildinni á næstu leiktíð og því mikið af leikjum framundan.
Hann er annar leikmaðurinn sem West Ham fær til sín í sumar. Hinn var miðvörðurinn Craig Dawson, sem var á láni hjá félaginu á síðustu leiktíð.
West Ham hafnaði í sjötta sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili.
Athugasemdir