Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fim 29. júlí 2021 18:24
Brynjar Ingi Erluson
Guðný Geirsdóttir aftur í ÍBV (Staðfest)
Guðný Geirsdóttir er mætt aftur til ÍBV
Guðný Geirsdóttir er mætt aftur til ÍBV
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðný Geirsdóttir er mætt aftur í ÍBV eftir að hafa verið á láni á Selfossi.

Guðný, sem er 23 ára gömul, gekk til liðs við Selfoss á láni frá Eyjakonum fyrir tímabilið.

Hún hefur spilað afar vel með Selfyssingum og spilað tíu leiki í rammanum. Guðný átti upprunalega að spila út leiktíðina en er nú mætt aftur í ÍBV.

Guðný fær leikheimild með ÍBV á morgun en aðeins tvö skilja Selfoss og ÍBV að.

ÍBV hefur fengið á sig 27 mörk í Pepsi Max-deildinni í sumar eða flest allra liða.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner