Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
banner
   fim 29. júlí 2021 23:22
Brynjar Ingi Erluson
KR fær markahæsta leikmann 2. deildar (Staðfest)
Mynd: ÍR
KR gekk í dag frá samningum við Unni Elvu Traustadóttur frá ÍR en liðið er að fá mikinn markahrók inn í hópinn.

Unnur er fædd árið 1998 og hefur gert 15 mörk í 9 leikjum með ÍR í 2. deildinni í sumar og er markahæst í deildinni.

Hún skoraði þá 7 mörk í 15 leikjum á síðasta tímabili en hún er nú gengin í raðir KR.

KR er í efsta sæti Lengjudeildarinnar með 29 stig og er atlagan gerð að sæti í efstu deild.

Unnur skoraði sex mörk í síðustu umferð með ÍR-ingum og verður fróðlegt að sjá hvað hún kemur með inn í KR-liðið.

„Í stað Unnar höfum við ÍR-ingar fengið tvo leikmenn á tímabundnum félagsskiptum út þetta leiktímabil, þær Ásta Kristinsdóttir og Emilía Ingvadóttir munu verða í okkar röðum til loka tímabilsins," segir í tilkynningu á Facebook-síðu ÍR Fótbolti.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner