Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 29. júlí 2021 18:31
Brynjar Ingi Erluson
Magni fær Dogatovic frá Grindavík (Staðfest)
Vladan Dogatovic spilar með Magna út þetta tímabil
Vladan Dogatovic spilar með Magna út þetta tímabil
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magni frá Grenivík hefur bætt við sig markverði fyrir átökin í 2. deild karla en Vladan Dogatovic kemur á láni frá Grindavík.

Dogatovic er fæddur árið 1984 og stóð vaktina í marki Grindavíkur í Lengjudeildinni á síðasta tímabili.

Hann var lánaður til KA í byrjun tímabilsins en hefur ekki spilað leik með liðinu.

Magni hefur tryggt sér þjónustu hans og spilar hann með liðinu út tímabilið á láni frá Grindavík.

Dogatovic fær leikheimild á morgun og getur því verið með Magna þegar liðið mætir ÍR í næstu umferð.
Athugasemdir
banner
banner
banner