Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 29. júlí 2022 11:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Cucurella biður formlega um sölu
Marc Cucurella.
Marc Cucurella.
Mynd: EPA
Vinstri bakvörðurinn Marc Cucurella er formlega búinn að biðja um sölu frá Brighton.

Frá þessu greinir íþróttafréttamaðurinn Fabrizio Romano sem þykir oftast mjög áreiðanlegur.

Manchester City hefur verið að eltast við Cucurella í allt sumar en hingað til hefur Brighton hafnað öllum tilboðum. Brighton vill fá að minnsta kosti 50 milljónir punda fyrir spænska bakvörðinn en City er ekki tilbúið að borga alveg það mikið.

Cucurella er ekki sáttur með gang mála og hann hefur því beðið formlega um sölu; hann vill komast til City þar sem hann á mikið meiri möguleika á að berjast um titla.

Það kom fram í slúðrinu í morgun að City væri að gefast upp á að fá Cucurella og hann vill ekki að það gerist.


Athugasemdir
banner
banner
banner