Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 29. júlí 2022 20:45
Ívan Guðjón Baldursson
Þýski bikarinn: Ungstirnin skinu í sigri Dortmund
Mynd: EPA

Borussia Dortmund er komið áfram í þýska bikarnum eftir þægilegan sigur á útivelli gegn 1860 München.


Donyell Malen skoraði og lagði upp í fyrri hálfleik og þá komust Jude Bellingham og Karim Adeyemi einnig á blað fyrir leikhlé. Gríðarlega efnileg sóknarlína hjá Dortmund.

Hvorugu liði tókst að bæta við marki í síðari hálfleik og urðu lokatölur 0-3. Dortmund er því komið áfram í 32-liða úrslit ásamt Stuttgart, Nurnberg og Karlsruher sem unnu einnig í dag.

1860 München 0 - 3 Dortmund
0-1 Donyell Malen ('8)
0-2 Jude Bellingham ('31)
0-3 Karim Adeyemi ('35)

Dynamo Dresden 0 - 1 Stuttgart

Kaan-Marienborn 0 - 2 Nurnberg

Neustrelitz 0 - 8 Karlsruher 


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner