Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 29. ágúst 2021 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Einn af dýrustu leikmönnum Villa til Club Brugge (Staðfest)
Wesley fagnar hér marki.
Wesley fagnar hér marki.
Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Aston Villa hefur lánað brasilíska sóknarmanninn Wesley til Club Brugge í Belgíu.

Wesley var keyptur til Aston Villa fyrir tveimur árum síðan - frá Club Brugge - fyrir 22,5 milljónir punda. Hann varð þá dýrastur í sögu félagsins en er núna sá fimmti í röðinni.

Hann hefur heldur betur ekki staðist væntingar hjá Aston Villa; hefur spilað 26 leiki og skorað sex mörk.

Þessi Brasilíumaður er núna aftur farinn til Belgíu þar sem hann skoraði 13 mörk í 38 deildarleikjum tímabilið 2018-19.

„Gangi þér vel Wesley," segir í tilkynningu frá enska úrvalsdeildarfélaginu.
Athugasemdir
banner
banner
banner