Fotbolti.net
29.08.22 - 22:21
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Samúel Kári til Atromitos (Staðfest)

Samúel Kári kominn í nýtt félag!

Samúel Kári kominn í nýtt félag!

Canon

Mynd: Atromitos

Samúel Kári Friðjónsson er orðinn leikmaður gríska félagsins Atromitos. Samúel skrifar undir tveggja ára samning við félagið sem kaupir hann frá norska félaginu Viking.
Samúel er 26 ára miðjumaður sem uppalinn er í Keflavík og var leikmaður liðsins áður en hann samdi við unglingalið Reading árið 2013.

Hann var þrjú ár hjá Reading áður en hann fór til Vålerenga og á lokaári sínu hjá Vålerenga var hann lánaður til Viking. Næst fór hann til Þýskalands en var einungis hálf tímabil hjá Paderborn áður en hann fór aftur til Viking og skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning. Sá samningur átti að renna út um áramótin.

Samúel á að baki átta A-landsleiki, síðast lék hann með landsliðinu árið 2019.

Hjá Atromitos verður hann liðsfélagi Viðars Arnar Kjartanssonar sem gekk í raðir félagsins á fyrsta degi þessa mánaðar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.