Fotbolti.net
29.08.26 - 16:08
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarliðsfréttir

Byrjunarlið ÍBV og Þórs: Mætir sínum gömlu félögum - Sowe bekkjaður

Þrjár breytingar á báðum liðum

Omar Sowe settur á bekkinn.

Omar Sowe settur á bekkinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Klukkan 17:00 tekur ÍBV á móti Þór í fyrsta leik 21. umferðar Bestu deildarinnar. Leikurinn fer fram á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum.

Tvö stig skilja liðin að í deildinni, ÍBV er með tveimur stigum meira en Þór en liðin sitja í 10. og 12. sæti. Fyrri leikurinn endaði með 1-4 sigri ÍBV á Akureyri.
Stefán Páls spáir í 21. umferð Bestu deildarinnar
TENGT EFNI

Stefán Páls spáir í 21. umferð Bestu deildarinnar

Lestu um leikinn: ÍBV 0 - 1 Þór
Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV, gerir þrjár breytingar frá tapinu gegn Keflavík í síðustu umferð. Omar Sowe, Felix Örn Friðriksson og Sesar Örn Harðarson taka sér sæti á bekknum og inn koma Róbert Elís Hlynsson, Eiður Atli Rúnarsson og Viggó Valgeirsson.

Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, gerir sömuleiðis þrjár breytingar frá tapinu gegn Stjörnunni í síðustu umferð. Atli Sigurjónsson og Einar Freyr Halldórsson taka sér sæti á bekknum en Ásbjörn Líndal er ekki með í dag. Inn í liðið koma Birgir Ómar Hlynsson, sem lék á láni með ÍBV í fyrra, Vilhelm Ottó og Sigfús Fannar Gunnarsson sem skoraði sitt fyrsta mark í sumar í síðutu umferð.

Byrjunarlið ÍBV

  • 33. Ari i Haraldstovu Petersen (m)
  • 2. Sigurður Arnar Magnússon
  • 4. Mattias Edeland
  • 6. Milan Tomic
  • 8. Bjarki Björn Gunnarsson
  • 10. Viggó Valgeirsson
  • 22. Eiður Atli Rúnarsson
  • 23. Arnór Ingi Kristinsson
  • 25. Alex Freyr Hilmarsson (f)
  • 27. Róbert Elís Hlynsson
  • 30. Vicente Rafael Valor Martínez

Byrjunarlið Þór

  • 1. Aron Birkir Stefánsson (m) (f)
  • 3. Birgir Ómar Hlynsson
  • 5. Yann Emmanuel Affi
  • 6. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson
  • 9. Victor Bertomeu
  • 16. Bjarni Guðjón Brynjólfsson
  • 20. Vilhelm Ottó Biering Ottósson
  • 22. Ágúst Eðvald Hlynsson
  • 23. Kevin Vazquez Comesaña
  • 25. Christian Jakobsen
  • 37. Sigfús Fannar Gunnarsson
Sigfús Fannar kemur inn í lið Þórs.

Sigfús Fannar kemur inn í lið Þórs.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Birgir lék á láni með ÍBV í fyrra.

Birgir lék á láni með ÍBV í fyrra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Róbert Elís kemur inn í liði ÍBV.

Róbert Elís kemur inn í liði ÍBV.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viggó byrjar í dag.

Viggó byrjar í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.20+4651
2KR20+2743
3Fram20+1443
4Breiðablik20+530
5Keflavík20-328
6ÍA20-426
7Stjarnan20-1024
8Valur20-723
9FH20-1218
10ÍBV20-1217
11KA20-1416
12Þór20-3015
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.