29.08.26 - 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stefán Páls spáir í 21. umferð Bestu deildarinnar

Stefán Pálsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stefán spáir sínum mönnum sigri.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Er að koma til baka.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hvað gerir KR gegn Víkingi?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stefán Pálsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðmundur Tyrfingsson var með þrjá rétta þegar hann spáði í síðustu umferð Bestu deildar karla.
Núna er komið að næst síðustu umferðinni fyrir skiptinguna. Sagnfræðingurinn Stefán Pálsson, sem er líka mikill Framari og Luton maður, spáir í leikina sem eru framundan.

ÍBV 0 - 0 Þór (17:00 í dag)
Ég þarf ekki að tékka á vedur.is - ég VEIT að það verður ofsarok í þessum leik og gæðin á fótboltanum þannig að engill deyr.
Fram 4 - 1 KA (17:00 á morgun)
Við Framarar erum enn aumir eftir sumarið 2024 þegar KA vann okkur í þrígang. Það hefðu þeir ekki átt að gera. Aulamark gulklæddra í blábyrjun mun valda tímabundnu stressi í Dal draumanna en Vuk, Byström, Sigurjón og Freyr skora hver sitt markið á stuttum kafla sitthvoru megin við hlé.
FH 1 - 0 Keflavík (17:00 á morgun)
„Þar munu þeir einir vera að ég hirði aldrei þótt drepist“, sagði Mörður Valgarðsson í Njálu og átti líklega við Fimleikafélagið og Keflavík. Slysalegt mark heimamanna í blálokin mun spilla fyrir því markmiði þeirra að gera jafntefli í öllum sínum leikjum. Bræðurnir setja á ís tillögu sína um að endurvekja tveggja stiga regluna.
Valur 2 - 1 ÍA (19:15 á morgun)
Patrick Pedersen er að hrökkva í gang og mun mjaka Valsmönnum upp fyrir strik. Kampakátur Brazell mun jafnvel gangast við því að vera þjálfari Valsliðsins. Týndi sonurinn, Markús Ellertsson, með mark Skagamanna sem þurfa að keyra Hvalfjörðinn heim eftir skyndilokun í göngunum.
Breiðablik 0 - 2 Stjarnan (19:15 á mánudag)
Nýja þjálfarateymið í Garðabænum bjargar starfinu sínu amk næstu tíu daganna með öruggum sigri á Blikum sem munu undirbúa óhjákvæmlegan ósigur sinn í bikarúrslitunum með glæstri taphrinu í deildinni. Pattaralegir framherjar Stjörnunnar munu skipta mörkunum á milli sín.
KR 3 - 1 Víkingur R. (17:30 á þriðjudag)
Evrópuþynnka hjá Víkingum og Aron Sigurðarson heldur áfram að sökkva öllum markametum sem í boði eru. Helgi Guðjóns, Framarinn úr Borgarbyggð klórar í bakkann. Tvöþúsund og tvöhundruð manns munu mæta en opinbera talan frá vinum mínúm í Vesturbænum verður rétt norðan við fjögurþúsund.
Fyrri spámenn:
Damir Muminovic (4 réttir)
Elmar Kári (4 réttir)
Ragnar Bragi (4 réttir)
Gísli Gotti (4 réttir)
Gummi Tyrfings (3 réttir)
Óðinn Bjarka (3 réttir)
Tómas Óli (3 réttir)
Daníel Freyr (3 réttir)
Tómas Guðmunds (3 réttir)
Júlíus Mar (3 réttir)
Stefán Þór (3 réttir)
Ágúst Brynjars (3 réttir)
Siggi Raggi (3 réttir)
Karl Ágúst (2 réttir)
Mattías Kjeld (2 réttir)
Viðar Örn (2 réttir)
Helga Rut (2 réttir)
Birkir Már (2 réttir)
Kári Sigfússon (2 réttir)
Siggi Hall (1 réttur)

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 20 | +46 | 51 |
| 2 | KR | 20 | +27 | 43 |
| 3 | Fram | 20 | +14 | 43 |
| 4 | Breiðablik | 20 | +5 | 30 |
| 5 | Keflavík | 20 | -3 | 28 |
| 6 | ÍA | 20 | -4 | 26 |
| 7 | Stjarnan | 20 | -10 | 24 |
| 8 | Valur | 20 | -7 | 23 |
| 9 | FH | 20 | -12 | 18 |
| 10 | ÍBV | 20 | -12 | 17 |
| 11 | KA | 20 | -14 | 16 |
| 12 | Þór | 20 | -30 | 15 |