Fotbolti.net
29.08.26 - 16:15
Sverrir Örn Einarsson

Lengjudeildin: Vallarmet er Afturelding tryggði sér sæti í Bestu deildinni

Sjö marka veisla í Grindavík

Afturelding upp í Bestu deildina!

Afturelding upp í Bestu deildina!

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Lengjudeildin
Afturelding tryggði sér sæti í Bestu deild karla á ný er liðið bar 1-0 sigurorð af liði Vestra að Malbiksstöðinni að Varmá í dag. Sigurinn þýðir að Afturelding er öruggt með toppsæti deildarinnar þar sem liðið situr með 45 stig 5 stigum á undan næstu liðum þegar aðeins ein umferð er eftir af deildinni.
Afturelding 2 - 0 Vestri
1-0 Joacim Emil Godhei Holtan ('42 )
2-0 Bart Kooistra ('94 )
Lestu um leikinn

Það var mikið um dýrðir í Mosfellsbæ í dag enda tilefnið ærið sæti í Bestu deildinni í augnsýn og bæjarhátíðin Í túninu heima í fullum gangi. Það dugði því ekkert minna til en vallarmet sem sett var en 1200 manns gerðu sér ferð á Malbiksstöðina til þess að berja leikinn augum.

Afturelding hóf leikinn betur og kom boltanum í netið eftir um níu mínútna leik þegar Andi Hoti skallaði aukaspyrnu utan af kanti í netið. Gunnar Oddur Hafliðason dómari leiksins sá þó eitthvað athugavert og fékk markið ekki að standa.

Gestirnir úr Vestra áttu sín upphlaup en tókst lítið að ógna marki heimamanna sem stóðu vörn sína vel. Á hinum endanum ógnaði Afturelding vel og á 21.mínútu leiksins björguðu Vestramenn á línu í tvígang eftir þunga sókn Aftureldingar.

Á 34.mínútu komu heimamenn boltanum í netið á ný en aftur var eitthvað athugavert við markið sem fékk ekki að standa eftir að Bart Koistra skallaði boltann í netið. Boltinn líklega farið útfyrir áður en fyrirgjöfin fyrir markið kom.

Á 42. mínútu leiksins var þó ekkert athugavert að finna. Gott spil Aftureldingar upp völlinn endaði með sendingu frá Aroni Elí Sævarssyni beint í fætur Joacim Holtan sem skoraði með góðu skoti og heimamenn í frábærri stöðu.

Í síðari hálfleik stýrðu heimamenn ferðinni og fengu ágætis færi til þess að bæta við marki en þurftu að bíða fram á 94.mínútu þegar Bart Koistra nýtti sér vandræðagang í vörn Vestra og kom boltanum í netið og tryggði endanlega sigur Aftureldingar og sæti í Bestu deildinni.

Grindavík 4 - 3 HK
1-0 Rúnar Ingi Eysteinsson ('6 )
2-0 Aron Skúli Brynjarsson ('25 )
3-0 Heiðar Snær Ragnarsson ('29 )
3-1 Atli Þór Gunnarsson ('59 )
3-2 Dominik Radic ('61 )
3-3 Birgir Steinn Styrmisson ('76 )
4-3 Mikael Máni Þorfinnsson ('92 )
Lestu um leikinn

Markaflóð var í Grindavík þar sem heimamenn sem eiga í harðri baráttu um að halda sæti sínu í deildinni tóku á móti liði HK sem er á leið í umspil um sæti í Bestu deildinni.

Þar voru það heimamenn sem fóru hamförum í fyrri hálfleik, Rúnar Ingi Eysteinsson, Aron Skúli Brynjarsson og Heiðar Snær Ragnarsson voru búnir að koma Grindavík í 3-0 eftir rétt tæplega hálftíma leik og þannig stóðu leikar í hálfleik.

Hálfleiksræða Gunnars Heiðars Þorvaldssonar þjálfara HK hefur virkað vel en gestirnir bitu vel frá sér í síðari hálfleik. Atli Þór Gunnarsson minnkaði munin í 3-1 eftir um klukkustundarleik og aðeins 2 mínútum síðan hafði Dominik Radic bætt við staðan orðin 3-2.Birgir Steinn Styrmisson var síðan á ferðinni á 76. mínútu leiksins er hann jafnaði leikinn fyrir HK.

Dramatíkinni var þó ekki lokið í Grindavík en á 92. mínútu tryggði hinn 16 ára gamli Mikael Máni Þorfinnsson heimamönnum í Grindavík 4-3 sigur með sínu fyrsta marki í sumar og fleytti þeim ansi langt á leið í átt að öruggu sæti í Lengjudeildinni að ári.


Leiknir R. 2 - 0 Njarðvík
1-0 Kári Steinn Hlífarsson ('15 , víti)
2-0 Axel Freyr Harðarson ('90 )
Rautt spjald: Árni Elvar Árnason, Leiknir R. ('87)
Lestu um leikinn

Í Breiðholti vann Leiknir 2-0 sigur á liði Njarðvíkur sem líkt og HK er á leið í umspil um sæti í Bestu deildinni.

Heimamenn komust yfir með marki Kára Steins Hlífarssonar úr vítaspyrnu sem dæmd var eftir að Arnleifur Hjörleifsson braut á Kára. Bæði lið fengu sín færi til að skora í leiknum eftir það en það var ekki fyrr en í uppbótartíma sem Axel Freyr Harðarson bætti við marki í leikinn fyrir Leikni er hann skilaði boltanum í netið eftir sendingu frá Degi Inga Hammer á 94. mínútu leiksins. Sjö mínútum fyrr höfðu Leiknismenn misst Árna Elvar Árnason af velli sem fékk að líta sitt seinna gula spjald og þar með rautt fyrir óhappabrot á vellinum.

Umferðinni lýkur síðar í dag þegar Völsungur tekur á móti liði ÍR.
Gríðarleg stemming var í Mosfellsbæ

Gríðarleg stemming var í Mosfellsbæ

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mark Mikaels gæti reynst Grindavík dýrmætt.

Mark Mikaels gæti reynst Grindavík dýrmætt.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding21+3345
2Þróttur R.21+2340
3Fylkir21+1440
4HK21+1135
5Njarðvík21+835
6Leiknir R.21+228
7Grótta21-527
8Vestri21-1127
9ÍR20-525
10Grindavík21-1024
11Völsungur20-1620
12Ægir21-448
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.