29.08.26 - 17:05
Helgi Inguson
Óskar sneri aftur í Úlfarsárdalinn: Var að spila við annan mann í dag
Auglýsing

„Mér fannst betra liðið tapa í dag

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Mér fannst betra liðið tapa í dag

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Mér líður bara skelfilega," sagði Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir tap gegn Fram á Lambhagavellinum í 17. umferð Bestu deildar kvenna.
Lestu um leikinn: Fram 3 - 2 Stjarnan
„Við eigum að vera búnar með þennan leik eftir 15 mínútur. Við fáum aragrúa af færum. Við spilum mjög vel og náum að skora tvö mjög góð mörk. Svo hægt og rólega jafnast leikurinn út, þær skora mark sem var lélegt af okkar hálfu.
Við byrjum vel í seinni og skorum eftir 30 sekúndur en það er dæmt af. Ég á eftir að sjá það aftur en það var a.m.k. mjög tæpt. Svo hægt og rólega eftir því sem líður á leikinn fannst mér Fram liðið stækka og við minnka. Þær klára þetta undir lokin og vel gert hjá þeim," sagði Óskar Smári um leikinn.
Óskar Smári þjálfaði Fram í fjögur ár áður en hann tók við Stjörnunni fyrir tæplega ári.
„Það var gott að mæta aftur í Úlfarsárdalinn. Ég var svo sem ekki að spila við Anton eða stelpurnar, ég var að spila við annan mann hérna í dag. En það var gott að hitta Daða og þetta góða fólk sem er hérna í Fram. Ég held að það viti allir að mér leið vel hérna í fjögur ár. Fram gerði helling fyrir mig og ég held að ég hafi gert helling fyrir Fram," sagði Óskar Smári að lokum.
Viðtalið í heild sinni má finna í spilaranum fyrir ofan