Helgi Sig: Frábær endir hjá okkur á þessu tímabili
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Helgi Sigurðsson, þjálfari Fylkis fékk Fjölnis liðið í heimsókn í Árbæinn og ákvað að vorkenna þeim ekki neitt eftir að vera fallnir um deild. Fylkir vann leikinn 7-0 og lyfti sér upp um 2 sæti í kjölfarið.
"Þetta var frábær leið til að klára tímabilið, gaman að strákarnir nutu sín svona vel og klárum mótið með stæl. Frábær endir fyrir okkur á þessu tímabili, í síðustu 7-8 leikjum erum við í 3 sæti miðað við stigafjölda sem við höfum safnað"
Fjölnir var fallið fyrir leikinn og það sást eftir að Fylkir náði inn fyrsta markinu, þá brotnaði Fjölnir alveg og allar flóðgáttir voru opnar.
"Ég lagði upp með það að fara með grimmd í leikinn og brjóta þá niður strax. Við vissum að þeir væru brotnir og langt niðri eftir síðustu umferð. 5-0, 7-0 skiptir ekki öllu máli en bara frábært að sjá strákana halda áfram allan tímann"
Helgi er mikið til í að vera áfram í Árbænum þar sem honum líður vel og sér hann fram á bjarta framtíð með liðinu.
Viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan