Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 29. september 2020 08:00
Aksentije Milisic
Khedira neitar að rifta samningi sínum við Juventus
Mynd: Getty Images
Sami Khedira, leikmaður Juventus, neitar að rifta samningi sínum við liðið nema hann fái hann allan greiddan.

Samkvæmt Sky Sports á Ítalíu þá hefur hinn 33 ára gamli Khedira engin plön um það að yfirgefa Juventus áður en samningi hans hjá félaginu lýkur, sem er í júní á næsta ári.

Juventus hefur losað sig við Gonzalo Higuain og Blaise Matuidi en báðir fóru þeir til Inter Miami. Þrátt fyrir viðræður milli umboðsmanns Khedira og Juventus, þá hefur félaginu ekki tekist að fá hann til þess að rifta samningnum.

Khedira kom til Juventus árið 2015 á frjálsri sölu frá Real Madrid. Hann hefur verið orðaður við PSG í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner