Ljóst er að Vestri getur ekki leikið undanúrslitaleikinn gegn Víkingi í Mjólkurbikarnum á heimavelli sínum á Ísafirði.
Leikurinn hefur því verið færður á hlutlausan völl og verður spilaður á Meistaravöllum, heimavelli KR. Samúel Samúelsson hjá Vestra staðfesti þetta í samtali við Fótbolta.net.
Leiktíminn heldur sér, 14:30 á laugardaginn.

Veðuraðstæður fyrir vestan hafa verið erfiðar og ljóst að ekki næst að gera Olísvöllinn á Ísafirði leikhæfan.
Vestri neyðist því til að spila leikinn á hlutlausum velli. Liðið leikur í Lengjudeildinni en hefur komið skemmtilega á óvart í bikarnum með því að vinna Íslandsmeistara síðasta árs, Valsmenn, í 8-liða úrslitum.
Nú mun Vestri leika gegn nýkrýndum Íslandsmeisturum Víkings en sigurliðið mun svo mæta sigurvegaranum úr leik ÍA og Keflavíkur í bikarúrslitaleiknum á Laugardalsvelli.
KR-ingar munu halda með Víkingi í leiknum í Vesturbænum á laugardag þar sem þeir komast í Evrópukeppni ef Víkingur fer alla leið og vinnur bikarinn.
Lið Vestra undirbýr sig fyrir leikinn með því að æfa á höfuðborgarsvæðinu.
Athugasemdir