Serbneski miðvörðurinn Stefan Spasic og portúgalski miðjumaðurinn Aliu "Kaby" Djalo eru farnir frá Víði og verður ekki með liðinu í síðustu tveimur umferðunum í 2. deildinni.
Spasic var með samning til 1. nóvember en að sögn hans gat hann ekki framlengt samninginn út mótið í 2. deild þar sem mikil óvissa er í Serbíu vegna kórónuveirunnar og landinu gæti verið lokað á næstunni.
Spasic er að ljúka sínu öðru tímabili með Víði en hann var áður á mála hjá Huginn þar sem hann fór meðal annars upp í 1. deild með liðinu.
Óvíst er hvort Spasic leiki áfram með Víði næsta sumar.
Djalo kom til Víðismanna í ágúst síðastliðnum en hann lék með Njarðvík í fyrrasumar.
Víðir er í fallsæti í 2. deildinni þegar tvær umferðir eru eftir en liðið á eftir leiki gegn Selfossi og Þrótti Vogum.
Stefan Spasic og Aliu "Kaby" Djalo hafa haldið til síns heima og spila ekki meira með liðinu í ár. Mikil óvissa er með...
Posted by Knattspyrnufélagið Víðir Garði on Fimmtudagur, 29. október 2020
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir