Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 29. október 2022 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Þór og Þór/KA farin úr Nike í Macron
Mynd: Macron
Allir iðkendur í fótbolta hjá Þór og Þór/KA munu klæðast Macron vörum næstu árin eftir að knattspyrnudeild Þórs og kvennaráð Þórs/KA gerðu fjögurra ára samning við íþróttavöruframleiðandann Macron.

Þór og Þór/KA hafa undanfarin ár klæðst Nike vörum en ákváðu að skipta yfir.

Macron er virtur framleiðandi frá Ítalíu sem er með samning við mikinn fjölda fótboltaliða, svo sem Crystal Palace og Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni og Udinese og Bologna á Ítalíu.

Valur, Víkingur R., Fylkir og HK klæðast einnig Macron göllum.

Þórs og Þórs/KA vörurnar frá Macron verða fáanlegar í sportvöruversluninni Msport í Kaupangi en einnig á macronnordurland.is.


Athugasemdir
banner
banner
banner