Fotbolti.net
29.10.22 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson

Þýskaland í dag - Bayern getur skotist á toppinn

Choupo-Moting hefur verið funheitur í síðustu leikjum.

Choupo-Moting hefur verið funheitur í síðustu leikjum.

Canon

Mynd: EPA

FC Bayern getur skotist á kunnuglegar slóðir í þýsku Bundesligunni með sigri á heimavelli gegn Mainz í dag.

Sigur fleytir Bayern uppfyrir Union Berlin og upp á topp deildarinnar en keppinautarnir frá Berlín eiga leik til góða á morgun.

Bayern hefur farið hikstandi af stað og er með 22 stig eftir 11 umferðir, einu stigi eftir Union. 

Freiburg kemur svo einu stigi eftir Bayern, Frankfurt er einu stigi þar á eftir og Dortmund einu þar á eftir. Það munar afar mjóu á liðunum í deildinni þar sem Köln er til dæmis í 11. sæti, sjö stigum frá toppnum.

Frankfurt og Dortmund eigast við í stórleik helgarinnar sem fer fram í dag en RB Leipzig og Bayer Leverkusen eigast einnig við í spennandi rimmu.

Leipzig og Leverkusen hafa farið illa af stað í haust en virðast vera að taka við sér.

Leikir dagsins:
13:30 Stuttgart - Augsburg
13:30 RB Leipzig - Leverkusen
13:30 Bayern - Mainz
13:30 Wolfsburg - Bochum
16:30 Eintracht Frankfurt - Dortmund

Dortmund þarf sigur í toppbaráttunni.

Dortmund þarf sigur í toppbaráttunni.

Canon

Mynd: EPA

Bundesliga - karlar

#LiðLmunStig
1Bayern8+1918
2Dortmund8+818
3Freiburg8+816
4RB Leipzig8+1115
5Werder8+315
6Leverkusen8+213
7Elversberg8013
8Frankfurt8-511
9Mainz8010
10Augsburg8+39
11Stuttgart8-19
12Hoffenheim8-29
13Köln8-39
14Paderborn8-39
15Hamburger8-129
16Union Berlin8-127
17Schalke 048-56
18Gladbach8-114
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.