Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 29. nóvember 2019 21:50
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spánn: Ekki mikil skemmtun
Valladolid er í eigu Ronaldo.
Valladolid er í eigu Ronaldo.
Mynd: Getty Images
Celta 0 - 0 Valladolid

Það var ekki boðið upp á mikla skemmtun í eina leik kvöldsins í spænsku úrvalsdeildinni, það voru að minnsta kosti engin mörk skoruð.

Celta Vigo tók á móti Real Valladolid. Heimaliðið átti fleiri marktilraunir heilt yfir, fjórar gegn tveimur.

Engin mörk voru hins vegar skoruð og niðurstaðan því markalaust jafntefli.

Celta er í 18. sæti, sem er fallsæti, með 13 stig eftir 15 leiki. Valladolid, sem er í eigu brasilísku goðsagnarinnar Ronaldo, er í 14. sæti með 18 stig.
Athugasemdir
banner
banner