Knattspyrnudeild ÍA tilkynnti í kvöld ráðningu á nýjum þjálfara en Jón Þór Hauksson gerir þriggja ára samning við félagið.
Jón Þór þekkir vel til á Akranesi enda er hann og fjölskylda hans búsett þar.
Hann var aðstoðarþjálfari ÍA árið 2017 og tók við sem aðalþjálfari eftir að Gunnlaugur Jónsson hætti með liðið. Hann tók því næst við sem aðstoðarþjálfari Stjörnunnar árið 2018 áðru en hann var ráðinn þjálfari kvennalandsliðsins.
Jón Þór óskaði eftir því að hætta með landsliðið undir lok árs 2020 eftir að liðið tryggði sig inn á Evrópumótið en hann átti samtöl við leikmenn undir áhrifum áfengis og tók því þá ákvörðun að segja af sér.
Hann stýrði Vestra á síðustu leiktíð er liðið hafnaði í 5. sæti deildarinnar og kom því þá í undanúrslit Mjólkurbikarsins, en tekur nú næsta skref og stýrir ÍA í efstu deild.
Jón skrifaði undir þriggja ára samning við ÍA í kvöld og tekur við liðinu af Jóhannesi Karli Guðjónssyni sem var ráðinn aðstoðarþjálfari íslenska karlalandsliðsins á dögunum.
„Ég vil byrja á því að þakka Vestra fyrir sýndan skilning og að gefa mér kost á að taka við mínu uppeldisfélagi. ÍA er félag sem allir vilja leiða og ég er stoltur af því að stjórn félagsins leitaði til mín."
„Framtíð knattspyrnunnar á Akranesi er björt, margar stjörnur íslenskrar knattspyrnu koma frá Akranesi og efniviðurinn er góður. Ég tek við öflugum og vel þjálfuðum leikmannahópi. Mér til aðstoðar hjá félaginu er til staðar teymi reynsumikilla og vel menntaðra þjálfara og ég hlakka til samtarfsins. Mitt fyrsta verk verður að hitta samtarfsfólk og leikmannahópinn til að kynna mínar áherslur," sagði Jón Þór við undirskrift.


