Jón Þór Hauksson er hættur þjálfun hjá Vestra en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í kvöld. Hann er að taka við ÍA.
Jóhannes Karl Guðjónsson hætti með ÍA á dögunum og tók við sem aðstoðarþjálfari hjá íslenska karlalandsliðinu.
Það var svo 433.is sem greindi frá því í dag að Jón Þór væri í viðræðum við ÍA og ætti félagið aðeins eftir að komast að samkomulagi við Vestra, sem virðist nú í höfn.
Vestri sendi frá sér tilkynningu nú rétt í þessu að Jón Þór væri hættur þjálfun liðsins og er hann nú að taka við ÍA.
„Jón Þór Hauksson hefur samið við ÍA um að taka við þjálfun liðsins. Jón Þór óskaði sjálfur eftir því að fá losna undan samning. Vestri og ÍA náðu samkomulagi sín á milli og mun Jón Þór því láta strax af störfum. Við óskum Jóni alls hins besta hjá nýju félagi og þökkum honum fyrir sitt starf," segir í tilkynningunni.
Jón Þór stýrði Vestra í 5. sæti Lengjudeildarinnar á síðasta tímabili og kom þá liðinu í undanúrslit Mjólkurbikarsins en þar áður var hann þjálfari kvennalandsliðsins.

