Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   mán 30. janúar 2023 22:24
Ívan Guðjón Baldursson
Traore fer í læknisskoðun hjá Bournemouth á morgun
Hamed Traore gæti sinnt lykilhlutverki fyrir Bournemouth í fallbaráttunni.
Hamed Traore gæti sinnt lykilhlutverki fyrir Bournemouth í fallbaráttunni.
Mynd: EPA

Bournemouth er að ganga frá tveimur leikmannakaupum á lokametrum janúargluggans. 


Úrúgvæski landsliðsbakvörðurinn Matias Vina er búinn að standast læknisskoðun en hann kemur á lánssamningi frá Roma með 15 milljón evru kaupmöguleika.

Þá hefur ítalska félagið Sassuolo samþykkt tilboð í sóknartengilið sinn Hamed Traore, sem komst í fréttirnar fyrir nokkrum árum fyrir að þykjast vera bróðir Amad Diallo sem er í dag leikmaður Manchester United.

Traore skoraði 7 mörk í 31 deildarleik á síðustu leiktíð en hefur verið að glíma við meiðsli og á aðeins þrjár stoðsendingar í ellefu leikjum á þessari leiktíð. 

Bournemouth hefur verið að leita sér að fjölhæfum sóknartengiliði og var næstum búið að krækja í Nicoló Zaniolo frá Roma fyrr í janúar, en leikmaðurinn neitaði að setjast niður fyrir samningsviðræður.

Stjórnendur Bournemouth vonast til að Traore geti hjálpað félaginu í fallbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar þar sem liðið er með 17 stig eftir 20 umferðir.

Traore, sem verður 23 ára í febrúar, á fjóra landsleiki að baki fyrir Fílabeinsströndina. Bournemouth borgar 21 milljón punda fyrir leikmanninn sem flýgur til Engands á morgun til að gangast undir læknisskoðun.


Athugasemdir
banner
banner
banner