Fotbolti.net
30.03.26 - 22:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Napoli hótar að refsa Lukaku - „Hefur haft áhrif á andlegu heilsuna"

Napoli hótar að refsa Lukaku - „Hefur haft áhrif á andlegu heilsuna"
Canon

Mynd: EPA

Napoli hótar að sekta Romelu Lukaku eða jafn vel taka hann út úr hópnum eftir að hann neitaði að snúa aftur til félagsins í landsleikjahléinu.
Lukaku var í belgíska hópnum í landsleikjahléinu en fór í læknisskoðun og það kom í ljós að hann væri ekki leikfær. Hann hefur verið að berjast við meiðsli á þessu tímabili og Rasmus Höjlund hefur verið á undan honum í goggunarröðinni.

Hann hefur aðeins komið við sögu í sjö leikjum á þessu tímabili.

Hann ákvað að vera eftir í Belgíu í stað þess að æfa með Napoli í landsleikjahléinu og það fór illa í Ítalana. Lukaku sendi frá sér yfirlýsingu vegna málsins.

„Það er ekkert annað sem ég myndi vilja gera en að spila og vinna fyrir liðið mitt. En núna þarf ég að vera viss um að ég sé í fullkomnu formi því þetta ástand hefur haft áhrif á andlegu heilsuna. Ég mun koma aftur og hjálpa Napoli og landsliðinu að ná markmiðum sínum," skrifaði Lukaku meðal annars.
Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.