Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 30. apríl 2021 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Fannar Hafsteinsson í Þór (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Markvörðurinn Fannar Hafsteinsson hefur verið skráður í leikmannahópinn hjá Þór en hann hefur ekki spilað skráðan leik á KSÍ síðan í ágúst 2016.

Fannar er fæddur 1995 og á 17 leiki að baki með meistaraflokki KA.

Hann á að hjálpa til við að leysa markmannsvandræði Þórsara sem eru án Arons Birkis Stefánssonar þar til í júlí. Þá var varamarkvörðurinn Auðunn Ingi Valtýsson að meiðast á miðvikudaginn og óljóst er hvenær hann verður klár í slaginn á ný.

Þór mætir Magna í nágrannaslag í Mjólkurbikarnum í kvöld.

Fannar þótti gífurlega mikið efni á sínum tíma og lék 19 leiki fyrir yngri landslið Íslands.
Athugasemdir
banner
banner