Lára Einarsdóttir er búin að skipta yfir til HK eftir að hafa leikið með Þór/KA í heilan áratug.
Lára er fædd 1995 og á 186 leiki að baki fyrir meistaraflokk Þórs/KA. Hún varð Íslandsmeistari með Akureyringum 2012 og 2017 en lék lítið hlutverk í fyrra.
Lára spilaði aðeins fjóra leiki á síðustu leiktíð eftir að hafa verið með í 22 leikjum sumarið 2019.
Hún skiptir yfir til HK sem vann 2. deild kvenna í fyrra og leikur því í Lengjudeildinni í ár.
Athugasemdir