ÍBV hefur samið við Stefán Inga Sigurðarson um að leika með liðinu í Lengjudeildinni í sumar.
Stefán Ingi er tvítugur sóknarmaður með mikla hæð og kemur hann á láni frá Breiðabliki.
Hann verður löglegur með Eyjaliðinu á morgun þegar leikið verður gegn Kórdrengjum í Mjólkurbikarnum. Leikurinn fer fram í Breiðholti.

„Það er mikil ánægja hjá knattspyrnuráði með að hafa fengið Stefán til liðsins og vilja forsvarsmenn ÍBV þakka Breiðablik fyrir gott samstarf í þessum félagaskiptum. Velkominn Stefán Ingi og áfram ÍBV, alltaf, alls staðar!" segir á heimasíðu ÍBV.
Í fyrra var hann lánaður til Grindavíkur þar sem hann skoraði þrjú mörk í sex leikjum í Lengjudeildinni. Stefán var á leið aftur á lán til Grindvíkinga þegar málin tóku nýja stefnu og mun hann leika með ÍBV í sumar.
Hann mun þó ekki klára tímabilið því hann er í námi í Bandaríkjunum og heldur aftur út um mitt sumar.
Athugasemdir