Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 30. apríl 2022 16:02
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England: Dramatík hjá Palace og Burnley - Norwich fallið (Staðfest)
Josh Brownhill í baráttunni
Josh Brownhill í baráttunni
Mynd: Getty Images

Það var mikil dramatík í leikjum dagsins í ensku úrvalsdeildinni.


Það var rosalegur fallbaráttuslagur þegar Watford og Burnley mættust. Watford komst yfir snemma leiks þegar James Tarkowski varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net.

Staðan var óbreytt allt fram á 83. mínútu þegar Jack Cork jafnaði metin. Burnley menn voru ekki hættir og aðeins þremur mínútum síðar skoraði Josh Brownhill og tryggði liðinu stigin þrjú.

Burnley fór uppfyrir Leeds sem mætir Man City á eftir með sigrinum, fimm stigum frá fallsæti. Watford er hins vegar í vondum málum, 12 stigum frá öruggu sæti þegar fjórar umferðir eru eftir.

Norwich er fallið eftir 2-0 tap gegn Aston Villa. Ollie Watkins kom liðinu yfir undir lok fyrri hálfleiks og Danny Ings skoraði síðara markið í uppbótartíma í síðari hálfleik.

Crystal Palace lenti undir snemma leiks gegn Southampton en Eberezi Eze jafnaði metin eftir klukkutíma leik. Wilfried Zaha byrjaði á bekknum en hann kom inná stuttu eftir jöfnunarmarkið.

Hann skoraði síðan sigurmarkið í uppbótartíma.

Brighton vann Wolves 3-0. Þetta var þriðja tap Wolves í röð, dýrt í baráttunni um Evrópusæti.

Aston Villa 2 - 0 Norwich
1-0 Ollie Watkins ('41 )
2-0 Danny Ings ('90 )

Southampton 1 - 2 Crystal Palace
1-0 Oriol Romeu ('9 )
1-1 Eberechi Eze ('60 )
1-2 Wilfred Zaha ('90 )

Watford 1 - 2 Burnley
1-0 James Tarkowski ('8 , sjálfsmark)
1-1 Jack Cork ('83 )
1-2 Josh Brownhill ('86 )

Wolves 0 - 3 Brighton
0-0 Alexis MacAllister ('33 , Misnotað víti)
0-1 Alexis MacAllister ('42 , víti)
0-2 Leandro Trossard ('70 )
0-3 Yves Bissouma ('86 )


Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Man City 33 23 7 3 80 32 +48 76
3 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 33 11 11 11 52 54 -2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner