Börsungar vilja Rashford aftur á láni - Ndidi gæti farið til Man Utd - Hár verðmiði á Tonali
„Fór frá því að spila yfir í það að mega ekki vera með á æfingum“
Sölvi: Teljum okkur vera með þannig hóp í ár
Stærsti samningur í sögu Víkings
Gylfi vonast til að vera mættur til að vera í landsliðinu - „Vonandi sem lengst“
Jökull: Sumt var full harkalegt
Adolf Daði: Ber miklar tilfinningar til Stjörnunnar
Jói Kalli: Skiptir máli þegar deildin byrjar
Arnar: Þurfum að taka doktorsprófið í að verða alvöru lið
Siggi Höskulds: Megum ekki vera svona barnalegir í sumar
Gummi Tyrfings: Við slökktum í þeim frá fyrstu mínútu
Allur pakkinn dró Djuric norður - „KA er stórveldið á Akureyri"
Óskar Hrafn: Forréttindi að þjálfa þessa tvo ungu menn
Jökull: Eitthvað sem enginn hjá okkur sættir sig við
Leandro: Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
„Töluvert síðan að hópurinn var klár en hann var ekki að spila leikinn í dag"
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
banner
   fim 30. maí 2024 23:46
Stefán Marteinn Ólafsson
Gísli Gottskálk um fyrsta markið í Bestu: Mjög sætt, viðurkenni það
Gísli Gottskálk Þórðarson
Gísli Gottskálk Þórðarson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingar heimsóttu Breiðablik þegar flautað var til leiks í 14.umferð Bestu deildarinnar. Þessi leikur var færður fram til að skapa pláss fyrir leiki liðana í Evrópukeppni í sumar.


Lestu um leikinn: Breiðablik 1 -  1 Víkingur R.

„Eftir á hyggja þá er gott að jafna þetta. Þetta er mikilvægt stig en við viljum alltaf vinna en gott að jafna þetta í lokin." Sagði Gísli Gottskálk Þórðarson leikmaður Víkinga eftir leikinn í kvöld.

Gísli Gottskálk skoraði jöfnunarmark Víkinga á 92. mínútu og viðurkenndi það að það hafi verið virkilega sætt að sjá á eftir boltanum fara í netið. 

„Það var mjög sætt, viðurkenni það. Fyrsta markið í Bestu deildinni og ég er mjög sáttur." 

Markið skoraði Gísli Gottskálk á móti uppeldisfélaginu en gaf það markinu eitthvað extra?

„Já og nei. Ég er ekkert að pæla of mikið í því núna. Það eru fimm mínútur síðan leikurinn kláraðist og ég er bara að reyna að koma mér niður og melta þetta." 

Gísli Gottskálk kom inn á sem varamaður í leiknum og fékk skilaboð frá Arnari að koma sér inn í boxið. 

„Ég held að hann hafi sagt orðrétt við mig 'komdu þér bara í boxið'. Hann sagði eftir leikinn að hann hafi verið ánægður með mig þegar ég kom hérna inn." 

Nánar er rætt við Gísla Gottskálk Þórðarson í spilaranum hér fyrir ofan.


Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner