Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   þri 30. júní 2020 21:22
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ívar Örn til HK (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
HK hefur keypt vinstri bakvörðinn Ívar Örn Jónsson frá Val. Valur hefur staðfest á samfélagsmiðlum sínum að HK hafi keypt Ívar.

Ívar er uppalinn hjá bæði Fram og HK en hann gekk í raðir Vals frá Víkingi R. fyrir tímabilið 2018.

Hjá Val varð Ívar Íslandsmeistari sumarið 2018. Ívar, sem varð 26 ára í febrúar, kom við sögu í sex leikjum með Val á síðustu leiktíð en hafði ekki komið við sögu í fyrstu leikjum Vals í Pepsi Max-deildinni þetta sumarið.

Hjá HK er fyrir vinstri bakvörðurinn Hörður Árnason.


Athugasemdir
banner
banner