Vilhjálmur: Fjölmiðlamenn uppteknir af tapleikjum Blika
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik fékk Stjörnuna í heimsókn. Gestirnir sigruðu leikinn með tveimur mörkum gegn einu.
Vilhjálmur Kári Haraldsson var til viðtals hjá Fótbolta.net eftir leikinn. Þú ert væntanlega ekki kátur?
„Nei, þetta er ekki það sem við ætluðum okkur. Mér fannst leikurinn vera fínn í fyrri hálfleik. Við fengum fín upphlaup og krossa, fullt af hornum, fullt af ágætis sénsum, kannski ekki dauðafærum."
„Svo fáum við þetta mark á okkur. Við erum að horfa á boltann og gleymum að dekka. Síðan þurfum við að skipta út tveimur leikmönnum í hálfleik útaf meiðslum, það auðvitað riðlar aðeins, mér fannst við eiga seinni hálfleikinn líka."
Þessi mörk sem þið fáið á ykkur, er þetta einbeitingaleysi eða hvað veldur?
„Ef ég vissi það þá væri ég búinn að laga það, þetta er að gerast fyrir okkur í þriðja leiknum í röð. Eins og ég sagði við stelpurnar, við erum enn í baráttunni, þetta er ekki búið en við fáum ekki mikið fleiri sénsa þannig við verðum að fara stoppa í þetta. Við erum alveg með lið til að gera það."
Þrjú töp á tímabilinu, er þetta orðið eitthvað andlegt?
„Ég veit það ekki, þetta er bara jafnari deild, fjölmiðlamenn eru uppteknir að því að Blikarnir séu að tapa, ég veit ekki hvort það fari í hausinn á þeim. Ég er vanur að tapa leik og leik með Augnablik þannig að það er ekki að stuða mig mikið að tapa einhverjum leik, þetta var þriðja tapið og nú skellum við í lás."