Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 30. júní 2022 23:32
Ívan Guðjón Baldursson
3. deild: Kári sigraði Vængina
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vængir Júpíters 1 - 2 Kári
0-1 Fylkir Jóhannsson ('4)
1-1 Jónas Breki Svavarsson ('6)
1-2 Andri Júlíusson ('35)


Vængir Júpíters tóku á móti Kára í eina leik kvöldsins í 3. deildinni og byrjaði viðureignin með látum.

Fylkir Jóhannsson kom Kára yfir strax á fjórðu mínútu og tók það Jónas Breka Svavarsson ekki nema tvær mínútur að svara með jöfnunarmarki.

Andri Júlíusson kom gestunum frá Akranesi aftur yfir fyrir leikhlé og staðan 1-2 þegar dómarinn flautaði.

Hvorugu liði tókst að skora í síðari hálfleik svo lokatölurnar urðu 1-2 og Kári er með 13 stig eftir 9 umferðir. Vængirnir eru með 10 stig, einu stigi fyrir ofan fallsæti.


Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner