Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fim 30. júní 2022 10:55
Elvar Geir Magnússon
Í BEINNI - 12:00 Dregið í Mjólkurbikarinn
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Dregið verður í undanúrslit Mjólkurbikars kvenna og 8-liða úrslit Mjólkurbikars karla í dag. Drátturinn hefst kl. 12:00 í Laugardal og verður í beinni textalýsingu hér að neðan:

Liðin í pottinum í Mjólkurbikar karla

Besta deild: FH, KR, KA, Víkingur R., Breiðablik
Lengjudeild: HK, Kórdrengir
2. deild: Ægir

Liðin í pottinum í Mjólkurbikar kvenna

Besta deild kvenna: Stjarnan, Selfoss, Valur, Breiðablik

12:16
Þá er drættinum lokið. Takk fyrir að fylgjast með

Eyða Breyta
12:16
8-liða úrslit Mjólkurbikars karla fara fram 10. og 11. ágúst. Evrópuliðin gætu leikið sunnudaginn um verslunarmannahelgi.

Eyða Breyta
12:14
KÓRDRENGIR - FH

Eyða Breyta
12:14
Kórdrengir fá heimaleik.

Eyða Breyta
12:14
HK - BREIÐABLIK

Arnþór Ari Atlason dró Kópavogsslag í Kórnum.

Eyða Breyta
12:13
HK fær heimaleik.

Eyða Breyta
12:13
KA - ÆGIR

Ægismenn fara norður á nýja Greifavöllinn.

Eyða Breyta
12:13
KA fær heimaleik.

Eyða Breyta
12:12
VÍKINGUR - KR

Júlli Magg sá um að draga. Ríkjandi meistarar fá KR í heimsókn.

Eyða Breyta
12:12
Í 8-liða úrslitum karla eru fimm lið úr Bestu deildinni, tvö úr Lengjudeildinni og eitt úr 2. deild. Byrjað verður að draga heimalið og svo kemur fulltrúi þess félags og dregur andstæðing.

Eyða Breyta
12:11
Þá förum við í 8-liða úrslit karla

Eyða Breyta
12:10
Undanúrslit kvenna:
Selfoss - Breiðablik
Stjarnan - Valur

Undanúrslit Mjólkurbikars kvenna fara fram dagana 12. og 13. ágúst

Eyða Breyta
12:10
Stjarnan og Selfoss fá heimaleiki í undanúrslitum kvenna.

Eyða Breyta
12:09
Drátturinn fer þannig fram að Bogi dregur bæði heimaliðin. Svo koma fulltrúar þeirra félaga upp og "slást" um kúlurnar sem eftir eru í skálinni.

Eyða Breyta
12:08
Vanda og Bogi sjá um að draga. Þau eru í sumarskapi virðist vera. Í undanúrslitum kvenna eru: Stjarnan, Selfoss, Valur, Breiðablik. Öll þessi lið hafa orðið bikarmeistarar.

Eyða Breyta
12:07
"Góðan dag og verði ykkur að góðu" segir Birkir Sveinsson. Þá er athöfnin hafin formlega.

Byrjað verður að draga í undanúrslit kvenna.

Eyða Breyta
12:06
Gríðarleg mæting hjá Breiðabliki á þennan drátt enda bæði með karla- og kvennaliðið í pottinum. Sýnist hafa komið rúta frá græna hluta Kópavogs á þessa athöfn.

Eyða Breyta
11:58
Vanda Sigurgeirsdóttir formaður KSÍ gengur inn í salinn. Fólk er byrjað að gæða sér á veitingunum umtöluðu.

Eyða Breyta
11:52
Drátturinn verður eitthvað yfir klukkan 12, veitingarnar hafa verið í forgangi hingað til og það breytist varla í dag.

Eyða Breyta
11:50
Fylkisbaninn Ágúst Karel Magnússon mun fá það hlutverk að draga fyrir Ægi Þorlákshöfn ef Ægismenn fá heimaleik.

Eyða Breyta
11:48
Davíð Snorri Jónasson, þjálfari U21 landsliðsins, mun fá þann heiður að taka fyrstu sneiðina af Mjólkurbikarkökunni að þessu sinni.






Eyða Breyta
11:40
Veitingarnar eru komnar á borðið hér í Laugardalnum. Borðið svignar undan öllum þessum kræsingum.

Birkir Sveinsson, hinn íslenski Marchetti, er búinn að koma skálinn á borðið og það er enginn annar en Bogi Ágústsson sem sér um að draga.



Eyða Breyta
11:00


Ríkjandi bikarmeistarar í karlaflokki eru Víkingar sem unnu Skagamenn 3-0 í úrslitaleiknum í fyrra. Víkingur komst í 8-liða úrslitin í ár með því að slátra Selfossi 6-0 á útivelli. Helgi Guðjónsson og Logi Tómasson skoruðu þrennur í þeim leik.

Víkingur situr í þriðja sæti Bestu deildarinnar, ellefu stigum á eftir Breiðabliki sem er á toppnum. Blikar unnu Skagamenn í 16-liða úrslitum þar sem Gísli Eyjólfsson skoraði sigurmarkið í lokin.

Eyða Breyta
11:00
Bikarævintýri í Þorlákshöfn


Ægismenn frá Þorlákshöfn hafa komið á óvart á tímabilinu. Þeir eru nýliðar í 2. deild þar sem þeir eru í toppbaráttunni og þá komust þeir í 8-liða úrslitin í bikarnum með því að vinna óvæntan 1-0 sigur gegn Fylki sem lék í efstu deild í fyrra.

Eyða Breyta
11:00

Stefán Ingi Sigurðarson hjá HK og Jón Gísli Ström hjá ÍR eru markahæstir í bikarkeppni karla á tímabilinu, með sex mörk hvor. ÍR-ingar féllu úr leik gegn FH í 16-liða úrslitunum.

Eyða Breyta
11:00

Brenna Lovera hjá Selfossi er markahæst í bikarkeppni kvenna á þessu tímabili. Hún hefur skorað fjögur mörk.

Eyða Breyta
11:00
Í banni í 8-liða úrslitum karla:
Bruno Soares, varnarmaður HK, mun taka út leikbann í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins þar sem hann hefur safnað tveimur gulum spjöldum.

Þá verður Davíð Smári Lamude, þjálfari Kórdrengja, ekki á hliðarlínunni í 8-liða úrslitum þar sem hann fékk rautt þegar Kórdrengir unnu Aftureldingu í framlengdum leik í 16-liða úrslitunum.



Eyða Breyta
11:00
Dagsetningar:
Undanúrslit Mjólkurbikars kvenna fara fram dagana 12. og 13. ágúst, en 8-liða úrslit Mjólkurbikars karla fara fram 10. og 11. ágúst.

Eyða Breyta
11:00


Breiðablik er ríkjandi bikarmeistari í kvennaflokki eftir auðveldan 4-0 sigur gegn Þrótti í úrslitaleik í fyrra. Blikakonur eru sem stendur í öðru sæti Bestu deildar kvenna, fjórum stigum frá Val sem er á toppnum. Stjarnan er í þriðja sæti en Selfoss í því sjötta.

Eyða Breyta
11:00
Velkomin með okkur í beina lýsingu frá Laugardalsvelli þar sem dregið verður í 8-liða úrslit Mjólkurbikars karla og undanúrslit Mjólkurbikars kvenna.

Liðin í pottinum í Mjólkurbikar karla

Besta deild
FH
KR
KA
Víkingur R.
Breiðablik

Lengjudeild
HK
Kórdrengir

2. deild
Ægir

Liðin í pottinum í Mjólkurbikar kvenna

Besta deild kvenna
Stjarnan
Selfoss
Valur
Breiðablik

Eyða Breyta
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner