Fotbolti.net
30.06.26 - 09:36
Kári Snorrason

Kane skrifar undir nýjan samning við Bayern - City blandar sér í baráttuna um Tonali

Skrifar undir nýjan samning við Bayern.

Skrifar undir nýjan samning við Bayern.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Harry Kane framlengir við Bayern, City blandar sér í baráttuna um Tonali og Olise fundar með Bayern um framtíð sína eftir HM. Þetta og margt fleira í slúðurpakka dagsins.
Harry Kane (32) mun skrifa undir nýjan samning við Bayern München þrátt fyrir áhuga Barcelona á enska framherjanum. (The Athletic)

Enzo Maresca, nýr stjóri Manchester City, gæti ráðist í mikla endurnýjun á leikmannahópi liðsins. Rico Lewis (21), Nathan Aké (31), Nico González (24), Rúben Dias (29) og Savinho (22) eru allir taldir líklegir til að yfirgefa félagið. (Daily Mail)

Manchester City er sagt ætla að blanda sér í baráttuna um Sandro Tonali (26), sem Tottenham hefur einnig áhuga á, þrátt fyrir að City hafi þegar náð samkomulagi um kaup á Elliot Anderson (23) frá Nottingham Forest. (Marca)

AC Milan undirbýr tilboð upp á rúmar 21 milljónir punda í Mason Mount (27), en Manchester United hefur ekki áhuga á að selja enska miðjumanninn. (Daily Mail)

Felix Nmecha (25) hjá Borussia Dortmund er sagður vilja frekar ganga til liðs við Manchester United en Newcastle United. (Bild)

Michael Olise (24) veit af áhuga Real Madrid og PSG, sem fylgjast með frammistöðu hans með franska landsliðinu á HM. Hann mun funda með Bayern eftir mótið um framtíð sína. (AS)

RB Leipzig segir Yan Diomande (19) verða áfram hjá félaginu á næstu leiktíð, þrátt fyrir fregnir um að hann hafi valið PSG sem næsta áfangastað. (Florian Plettenberg)
Eftirsóttur Tonali.

Eftirsóttur Tonali.

Canon

Mynd: EPA

Nýr stjóri City.

Nýr stjóri City.

Canon

Mynd: Manchester City

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.