Fotbolti.net
30.06.26 - 09:20
Elvar Geir Magnússon

Rooney kallar eftir því að Mainoo komi inn í liðið

Mainoo hefur ekki komið við sögu á HM.

Mainoo hefur ekki komið við sögu á HM.

Canon

Mynd: EPA

Wayne Rooney, fyrrum fyrirliði Englands, segir að hann myndi láta Kobbie Mainoo byrja í enska landsliðinu í stað Elliot Anderson en England mætir Kongó á morgun í 32-liða úrslitum.

Mainoo hefur ekki spilað mótsleik fyrir landsliðið síðan í september 2024 en hann missti sæti sitt eftir að hafa verið úti í kuldanum hjá Manchester United undir stjórn Rúben Amorim.

Mainoo vann sæti sitt til baka hjá United undir stjórn Michael Carrick og lék í vináttulandsleikjum fyrir HM en hefur ekki komið við sögu í riðlakeppninni.

Rooney vill sjá Maino koma inn í byrjunarliðið í stað Elliot Anderson, sem er á leið til Manchester City frá Nottingham Forest fyrir metfé.
„Ég myndi vera með Declan Rice sem varnartengilið og Mainoo og Jude Bellingham með honum á miðjunni. Mainoo getur gefið þér blöndu sóknarlega og varnarlega og er öflugur á þröngum svæðum. Ég tel að England sé ekki með leikmann sem getur unnið eins vel á þröngum svæðum og Mainoo," segir Rooney.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.