Fotbolti.net
30.06.26 - 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Viktor Karl: Sagði það við strákana fyrir leik

Mér finnst munurinn á milli þessara liða alls ekki vera jafn mikill og stigafjöldinn í deildinni segir til um

Mér finnst munurinn á milli þessara liða alls ekki vera jafn mikill og stigafjöldinn í deildinni segir til um

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
Það var sjáanlegur munur á frammistöðu Breiðabliks í síðustu tveimur leikjum. Víkingur vann 1-4 sigur í deildarleik liðanna á Kópavogsvelli á fimmtudag en Blikar svöruðu fyrir sig með 3-0 sigri í bikarleik liðanna á sunnudag. Með sigrinum tryggði Breiðablik sér sæti í bikarúrslitaleik í fyrsta sinn síðan 2018.

Fótbolti.net ræddi við Viktor Karl Einarsson, leikmann Breiðabliks, um aðdraganda seinni leiksins og leikinn sjálfan.
Lestu um leikinn: Breiðablik 3 - 0 Víkingur R.
Sölvi ekki sáttur eftir 4-1 útisigur á Breiðabliki: Óskaði eftir viðbrögðum í hálfleik
TENGT EFNI

Sölvi ekki sáttur eftir 4-1 útisigur á Breiðabliki: Óskaði eftir viðbrögðum í hálfleik


Í viðtölum eftir deildarleikinn töluðu Víkingar, þrátt fyrir þriggja marka sigur, um að þeir hefðu ekki verið sáttir við frammistöðu sína í leiknum.

Mögulega eitthvað í undirmeðvitundinni
Voru þau orð hvatning fyrir Blika? Nýttu Blikar sér einhverja ytri hvatningu fyrir leikinn?

„Mögulega eitthvað í undirmeðvitundinni sem fer af stað þegar þú heyrir þá segja þetta, það var alveg minnst á þetta, en það var meira litið á hina hliðina, það að við vorum sjálfum okkur verstir í rauninni. Víkingarnir voru ekki frábærir á fimmtudaginn og við vissum það alveg jafnvel og þeir svo sem, það var því smá svekkjandi að við hefðum ekki getað verið betur gíraðir í þeim leik og sett sömu orku og baráttu í deildarleikinn eins og við settum svo í bikarleikinn. Við litum meira á það þannig að við hefðum ekki náð að gíra okkur og refsað Víkingunum fyrir að hafa kannski ekki verið á sínum degi."

Risa nöfn sem byrjuðu ekki leikinn
Víkingur gerði fimm breytingar á sínu byrjunarliði milli leikja. Oliver Ekroth tók út leikbann, Aron Elís Þrándarson var ekki í hópnum og þeir Gylfi Þór Sigurðsson, Valdimar Þór Ingimundarson og Daníel Hafsteinsson byrjuðu á bekknum.

Þegar þið sáuð byrjunarlið Víkings, áfram vel mannað lið, en enginn Gylfi, Daníel eða Valdimar, skipti þetta ykkur einhverju máli? Spáið þið eitthvað í þessu?

„Ég hef eiginlega aldrei kíkt á byrjunarlið andstæðingsins. En auðvitað eru þetta risa nöfn og þeir leikmenn sem eru búnir að spila alla leiki Víkings í mótinu og ekki búnir að tapa leik. Mögulega fara einhverjar hugsanir af stað, held það sé eðlilegt."

„En ég held að munurinn milli leikja hjá leikmönnum hafi verið að við vorum bara að hugsa um okkur í seinni leiknum. Þegar við erum á okkar degi þá er mjög erfitt að eiga við okkur. Það var plan númer eitt, tvö og þrjú fyrir bikarleikinn, að fara í okkar gildi og hugsa um hvað við værum að gera, frekar en hvað þeir væru að gera."


Risastórt fyrir liðið og félagið
Var talað um fyrir bikarleikinn að sá leikur væri mjög mikilvægur upp á sumarið í heild sinni?

„Alveg klárt, ég allavega minntist á það við leikmenn að þetta skiptir okkur miklu máli og fyrir klúbbinn í heild sinni að fara í bikarúrslit. Það er risastórt og eitthvað sem okkur hefur langað í langan tíma en ekki tekist. Þetta hafði mikla þýðingu fyrir klúbbinn og maður fann það alveg þegar leikurinn var að klárast að þetta hafði rosalega mikla þýðingu fyrir leikmenn og alla í kringum klúbbinn."

Kveiktu á grunngildunum og urðu ofan á
Var eitthvað sérstakt sem þið náðuð að gera í bikarleiknum en náðuð ekki að gera í deildarleiknum?

„Mér fannst við heilt yfir bera meiri virðingu fyrir verkefninu og mæta Víkingunum af þeirri virðingu sem þeir eiga skilið. Ég á þá við að mæta 100% gíraðir, fara harkalega í þá, mæta þeim í baráttunni. Það er það sem þarf og mér fannst menn kveikja á þessum grunngildum í þessum bikarleik. Eins og ég sagði, þegar við erum með þau á hreinu þá erum við líka góðir í fótbolta og þá er erfitt að eiga við okkur. Leikir Breiðabliks og Víkings hafa alltaf snúist um þetta, hvort liðið ætlar að vera harðara, leggja meira í einvígin. Mér fannst við vera meira ofan á."

„Við aðlöguðum aðeins til í leikplaninu líka, það gekk mjög vel og allur pakkinn kom vel saman á sunnudaginn."


Munurinn ekki svona mikill
Þjálfari Breiðabliks, Ólafur Ingi Skúlason, talaði um það í viðtölum eftir leik að hann væri ósammála því að það væri gjá á milli liðanna. Nefndi hann við ykkur að liðið yrði að sýna að þessi gjá væri ekki til staðar?
Ólafur Ingi: Ósammála fólki úti í bæ sem talar um einhverja gjá
TENGT EFNI

Ólafur Ingi: Ósammála fólki úti í bæ sem talar um einhverja gjá


„Já. Eftir deildarleikinn var upplifun okkar alls ekki sú að þeir hefðu verið mikið betri en við. Þetta var meira þannig að þeir voru ótrúlega klínískir á meðan við fórum illa með okkar stöður. Þeir vildu þetta meira og svo snerist þetta við á sunnudaginn. Þá vorum við grimmari og tókum sénsana okkar mjög vel. Ég efast um að Víkingar horfi á bikarleikinn og hugsi að þeir hafi verið mikið síðri en við í leiknum, en við vorum bara einhvern veginn ofan þá, og þeir á fimmtudaginn. Mér finnst munurinn á milli þessara liða alls ekki vera jafn mikill og stigafjöldinn í deildinni segir til um."

18 stig skilja liðin að í deildinni en Víkingur hefur spilað leik meira en Breiðablik.

Tækifæri á að vinna titil
Hvað gerir þessi sigur fyrir ykkur?

„Þó svo að maður sé alltaf að hugsa um næsta leik, þá gefur það alltaf helling að vera með gulrót fyrir framan sig þar sem við eigum séns á að vinna titil fyrir klúbbinn og okkur sjálfa. Þó að maður sé alltaf að eltast við sjálfan sig að gera betur, þá er alltaf einhver fegurð í því að vera með gulrót seint á tímabilinu, möguleikann á titli. Það gerir bara helling."

Mikill heiður
Viktor hefur borið fyrirliðabandið í þeim leikjum sem Höskuldur Gunnlaugsson hefur ekki getað spilað. Hvernig er að bera fyrirliðabandið hjá uppeldisfélaginu?

„Það er bara yndislegt. Ég væri náttúrulega mest til í að Höskuldur væri að spila með mér og myndi bera bandið. En í fjarveru hans er það mikill heiður að leiða þessa drengi og klúbbinn út á völlinn," segir Viktor Karl.

Næsti leikur Breiðabliks er útileikur gegn ÍA á laugardag í Bestu deildinni. Bikarúrslitaleikurinn fer fram föstudagskvöldið 11. september á Laugardalsvelli. Breiðablik mætir þar annað hvort Aftureldingu eða Fylki og getur karlaliðið unnið sinn annan bikartitil í sögunni.
Skoraði fyrsta markið á hárréttum tímapunkti - „Búinn að dreyma um þetta augnablik“
TENGT EFNI

Skoraði fyrsta markið á hárréttum tímapunkti - „Búinn að dreyma um þetta augnablik“

Maður fann það alveg þegar leikurinn var að klárast að þetta hafði rosalega mikla þýðingu fyrir leikmenn og alla í kringum klúbbinn

Maður fann það alveg þegar leikurinn var að klárast að þetta hafði rosalega mikla þýðingu fyrir leikmenn og alla í kringum klúbbinn

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Auðvitað eru þetta risa nöfn og þeir leikmenn sem eru búnir að spila alla leiki Víkings í mótinu og ekki búnir að tapa leik. Mögulega fara einhverjar hugsanir af stað, held það sé eðlilegt

Auðvitað eru þetta risa nöfn og þeir leikmenn sem eru búnir að spila alla leiki Víkings í mótinu og ekki búnir að tapa leik. Mögulega fara einhverjar hugsanir af stað, held það sé eðlilegt

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þó að maður sé alltaf að eltast við sjálfan sig að gera betur, þá er alltaf einhver fegurð í því að vera með gulrót seint á tímabilinu, möguleikann á titli. Það gerir bara helling

Þó að maður sé alltaf að eltast við sjálfan sig að gera betur, þá er alltaf einhver fegurð í því að vera með gulrót seint á tímabilinu, möguleikann á titli. Það gerir bara helling

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ósammála umræðunni um gjá á milli liðanna.

Ósammála umræðunni um gjá á milli liðanna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég á þá við að mæta 100% gíraðir, fara harkalega í þá, mæta þeim í baráttunni. Það er það sem þarf og mér fannst menn kveikja á þessum grunngildum í þessum bikarleik

Ég á þá við að mæta 100% gíraðir, fara harkalega í þá, mæta þeim í baráttunni. Það er það sem þarf og mér fannst menn kveikja á þessum grunngildum í þessum bikarleik

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það er mikill heiður að leiða þessa drengi og klúbbinn út á völlinn

Það er mikill heiður að leiða þessa drengi og klúbbinn út á völlinn

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viktor Karl: Sagði það við strákana fyrir leik
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viktor Karl: Sagði það við strákana fyrir leik
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viktor Karl: Sagði það við strákana fyrir leik
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.