Fotbolti.net
30.07.13 - 21:44
Brynjar Ingi Erluson

Hlynur Svan: Allir aðrir á bekknum að róa mig niður

Auglýsing
Hlynur Svan: Allir aðrir á bekknum að róa mig niður
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir

Hertz
Hlynur Svan Eiríksson, þjálfari Breiðabliks í Pepsi-deild kvenna, var að vonum ánægður með 3-0 sigur liðsins á nágrönnum þeirra í HK/Víking.
,,Við erum voðalega sátt og sérstaklega seinni hálfleikinn. Við vorum svolítið lengi í gang og HK spilaði fínan leik á móti okkur, sérstaklega í fyrri hálfleik, en hægt og sígandi tókum við yfir,\" sagði Hlynur.

,,Ég hafði áhyggjur að við myndum ekki skora, en það voru allir aðrir á bekknum að róa mig niður og að þetta myndi koma.\"

,,Mér fannst ekki vera teikn á lofti að þær myndu gera þrjú mörk á móti okkur eins og þær gerðu í fyrsta leiknum,\"
sagði hann ennfremur.

Á Breiðablik enn séns í titilbaráttunni? ,,Já, ég sagði eftir leik á móti Stjörnunni að þetta væri búið, en þetta er ekki búið fyrr en dómarinn flautar af. Stjarnan er með gott lið og hafa verið á rönni,\" sagði hann.

Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.