Arsenal hefur staðfest kaupin á Benjamin White frá Brighton. White er miðvörður sem Arsenal hefur verið á höttunum eftir í allt sumar.
White var valinn í enska landsliðið sem tók þátt í EM í sumar en hann lék þó ekki leik.
White var valinn í enska landsliðið sem tók þátt í EM í sumar en hann lék þó ekki leik.
White er 23 ára og verður 24 ára í október. Hann er uppalinn hjá Southamtpon en gekk í raðir Brighton árið 2014. Hann var tímabilið 2019-2020 á láni hjá Leeds og vakti mikla athygli.
White tók þátt í 36 leikjum með Brighton í úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.
White er talinn kosta um fimmtíu milljónir punda.
Sorry we're late...
— Arsenal (@Arsenal) July 30, 2021
Traffic was a nightmare 😉 pic.twitter.com/sO1T9981Rw
Athugasemdir