Miðjumaðurinn Conor Gallagher hefur skrifað undir samningm við Crystal Palace út þetta tímabil.
Þetta staðfesti Palace nú í kvöld en Gallagher er efnilegur leikmaður sem kemur frá Chelsea.
Gallagher þótti vera einn besti leikmaður West Bromwich Albion á síðustu leiktíð en hann var þar í láni.
Palace tók eftir frammistöðu Gallagher sem spilaði 30 leiki og skoraði tvö mörk.
Chelsea ákvað að það væri best fyrir þennan 21 árs gamla leikmann að fá frekari reynslu annars staðar í vetur.
Welcome to Palace, Conor Gallagher ✍️#CPFC | https://t.co/utMcYSDkhb
— Crystal Palace F.C. (@CPFC) July 30, 2021
Athugasemdir