Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 30. júlí 2021 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Eigandinn rak tvo leikmenn eftir tap í Sambandsdeildinni
Zdenek Ondrasek var rekinn eftir tapið
Zdenek Ondrasek var rekinn eftir tapið
Mynd: EPA
Gigi Becali, eigandi Steaua Bucharesti í Rúmeníu, hefur ákveðið að reka tvo leikmenn frá félaginu eftir að liðinu mistókst að komast áfram í næstu umferð Sambansdeildar Evrópu.

Steaua Bucharesti tapaði fyrir Shakhter Karagandy frá Kasakstan í gær.

Leikurinn fór alla leið í vítaspyrnukeppni þar sem Shakhter hafði betur en Becali ákvað að grípa til róttækra aðgerða með því að reka tvo leikmenn eftir leikinn.

Stipe Vucur og Zdenek Ondrasek spiluðu báðir í gær en þeir sömdu við félagið í sumar. Becali hefur ákveðið að rifta samningnum við leikmennina.

„Stipe Vucur og Zdenek Ondrasek eru farnir. Það verður rift samningnum við þá," sagði Becali eftir leikinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner