Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 30. ágúst 2021 10:05
Elvar Geir Magnússon
Blikar tilkynna um komu Péturs Theodórs (Staðfest)
Pétur Theodór fer í Breiðablik.
Pétur Theodór fer í Breiðablik.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Sóknarmaðurinn Pétur Theodór Árnason mun ganga í raðir Breiðabliks eftir tímabilið en Kópavogsfélagið hefur loks staðfest þetta. Fjölmiðlar fjölluðu um það í sumar að þetta væri frágengið.

Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfaði Pétur hjá Gróttu og hann þekkir hann því út og inn.

Pétur er markahæsti leikmaður Lengjudeildarinnar en hann hefur skorað 18 mörk í 19 leikjum.

Af blikar.is:
Grótta og Breiðablik hafa náð samkomulagi um að framherjinn stóri og stæðilegi Pétur Theódór Árnason gangi til liðs við Blika fyrir næsta keppnistímabil.

Pétur sem er 25 ára framherji er sem stendur markahæsti leikmaðurinn í Lengjudeildinni 2021 með 18 mörk í 19 leikjum. Hann á að baki 4 drengjalandsleiki en lenti svo í erfiðum meiðslum. En með mikill elju og dugnaði náði hann sér aftur og hefur verið með öflugustu leikmönnum Gróttu undanfarin ár.

Pétur hefur spilað 152 leiki í meistaraflokki og skorað í þeim 74 mörk.

Pétur er ekki eingöngu góður knattspyrnumaður heldur einnig góður félagsmaður. Hann var kosinn Íþróttamaður Gróttu árið 2019 og Íþróttamaður Seltjarnarness árið 2020.

Leikmaðurinn gerir þriggja ára samning við knattspyrnudeild Breiðabliks.

Velkominn í græna búninginn Pétur !




Athugasemdir
banner
banner